Innlent

Nýtt sjóminjasafn opnað

Sjómennskan er ekkert grín var sungið forðum og á nýju sjóminjasafni í Reykjavík má sannreyna það. Þar er meðal annars hægt að kynna sér hundrað ára sögu togaraútgerðar á landinu. Það voru þeir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Gísli Jónsson, fyrrverandi sjómaður, sem opnuðu fyrstu sýninguna á sjóminjasafninu í Reykjavík. Safnið kallast Víkin og þar getur nú að líta sýningu á sögu togaraútgerðar. Meðal annars getur að líta brú úr skipi, ýmsa muni úr íslenskri siglingasögu og fleira. Í ár eru liðin hundrað ár frá því að Íslendingar hófu togaraútgerð. Gísli kynntist gamla tímanum og er ekki viss um að lúxusfley samtímans séu endilega betri. Hann vill ekki fullyrða hvort hann hefði viljað lifa við þennan lúxus og kveðst eiginlega þurfa að fara um borð og kynnast þessu. En hann segir þetta varla líkt neinni sjómennsku lengur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×