Innlent

Á árabáti í kringum landið

Einn og á árabáti ætlar Kjartan Hauksson að róa um landið. Þannig ætlar hann að koma Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra, til hjálpar. Kjartan, sem er 43 ára gamall kafari frá Ísafirði, lagði síðdegis af stað frá höfninni í Bolungarvík til að klára seinni hluta hringferðar sinnar en fyrri hlutann fór hann fyrir tveimur árum. Þá lauk förinni hins vegar þegar báturinn brotlenti í Rekavík. Nú er Kjartan betur búinn, á léttari bát og til í slaginn. Hann segist vera í góðu formi og ná allt upp í sjö sjómílna hraða en það sé þó ekki í langan tíma í senn. Og Kjartan ætlar ekki að vera á lengi á ferðinni, eða um sex vikur, en vonast samt eftir að vera enn fljótari - ef hægt er. Tilgangur þessa alls er að safna áheitum í hjálparliðahóp Sjálfsbjargar en á vef félagsins, www.sjalfsbjorg.is, má fylgjast með ferðum Kjartans og heita á hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×