Innlent

75 ára afmæli Austurbæjarskóla

Ein glæsilegasta skrúðganga ársins hlykkjaðist um Barónsstíginn um hádegisbilið í dag. Þar voru á ferð jómfrúr, hippar, pönkarar og fleiri tákngervingar síðustu sjötíu og fimm ára. Þau voru á kreiki til að fagna sjötíu og fimm ára afmæli Austurbæjarskóla. Gangan var sem sagt mjög litskrúðug en að henni lokinni tók við dagskrá við skólann. Saga skólans og fjölmenningarsamfélagið sem einkennir hann í dag voru í forgrunni, auk þess sem eins ástsælasta kennara skólans, Stefáns Jónssonar rithöfundar, var minnst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×