Innlent

Bílstjórar eiga við samvisku sína

Trukkabílstjórar verða að eiga við samvisku sína hvort þeir séu færir um að aka svo dögum skiptir, segir formaður bifreiðastjórafélagsins Sleipnis. Reglugerðir fyrirskipa hvíldartíma en Hæstiréttur segir engar refsiheimildir til staðar, og því er ekki hægt að framfylgja reglugerðinni. Bifreiðastjóri sem braut EES-reglur um hvíldartíma var sýknaður í Hæstarétti í fyrradag þar sem refsiheimild skorti. Vegna þessa kærir Vegagerðin ekki lengur fyrir brot á þessum reglum en þar á bæ óttast menn og vita um tilfelli þar sem flutningabifreiðastjórar hafa ekið jafnvel sólarhring sleitulaust. Aðspurður hvort hann telji ekki að bílstjórar sem aka svo dögum skiptir séu stórhættulegir á þjóðvegum landsins segir Óskar Stefánsson, formaður bifreiðastjórafélagsins Sleipnis, það vel geta verið. Reglugerðin segi að bílstjórar eigi að fá tvo samfellda frídaga í viku en öðrum þeirra megi fresta. Einnig geti bílstjóri byrjað vikuna á að taka sér frí, og á þá ekkert frí það sem eftir þeirrar viku, en er svo í sjálfsvald sett hvort hann taki sér frí í byrjun vikunnar þar á eftir. Menn þurfi ávallt að eiga það við samvisku sína hvort þeir séu hæfir til aksturs, eins og reyndar komi óbeint fram í umferðarlögunum. Og íslenskir bifreiðastjórar eru á því að EES-reglurnar komi verr niður á þeim en kollegum á meginlandinu. Þar geta bílstjórar ekið í sex daga samfleytt í sínu landi og svo farið yfir landamæri og ekið í aðra sex daga þar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×