Innlent

Grillveisla gekk framar vonum

Um 70 manns skemmtu sér hið besta í grillveislu Krafts, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, en slík veisla er haldin á hverju ári. Fór hún fram í Hellisgerði í Hafnarfirði að þessu sinni í blíðskaparveðri sem einkenndi suðvesturhorn landsins í gær. Að sögn Maríu Erlu Pálsdóttur, sem sá um undirbúning veislunnar, skemmtu gestir sér hið besta en fjölmargt var í boði auk þess sem hljómsveitin Ættarbandið lék og söng allan tímann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×