Innlent

Skilti á stærð við íbúð

Sérfróðir menn unnu við það í fyrrakvöld að setja upp á þak nýrrar verslunar Bílanausts stærsta auglýsingaskilti sem sést hefur á landinu. Var þar um að ræða auglýsingu fyrir verslunina Bílanaust sem opnar seinna í þessum mánuði en skiltið er alls 44 fermetrar að stærð eða svipað og einstaklingsíbúð og lýst upp af 86 flúorperum. Var skiltið smíðað í verksmiðju í Lettlandi eftir íslenskri teikningu og komu hingað til lands tveir menn frá fyrirtækinu sérstaklega til að setja það upp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×