Innlent

Féll ofan af fjórðu hæð

Karlmaður á þrítugsaldri hlaut nokkur beinbrot eftir fall ofan af fjórðu hæð húss í miðborg Reykjavíkur í nótt. Á sjöunda tímanum í morgun barst lögreglunni tilkynning um að maður væri að klifra utan á húsinu en hann hafði farið út um glugga á sameign og reynt að komast inn í íbúð utan frá. Það gekk þó ekki betur en svo að hann datt niður og fótbrotnaði illa. Þrátt fyrir það þykir hann hafa sloppið ótrúlega vel. Töluverður erill var annars hjá lögreglunni í höfuðborginni síðastliðna nótt og er það meðal annars rakið til þess að veður var með besta móti auk þess sem skólastarfi er víða nýlokið. Meðal annars var ökumaður tekinn á hundrað og sextán kílómetra hraða á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar eftir að hafa ekið yfir á rauðu ljósi þar. Í þokkabót reyndist maðurinn vera með útrunnið ökuskírteini og er grunaður um ölvun við akstur. Þá voru þrettán teknir vegna brota á fíkniefnalöggjöfinni. Lögreglan gerði átak í að fylgjast með eiturlyfjaumferð í miðborginni og leiddi það til þessara handtaka. Flestir voru þó með lítið magn eiturlyfja til eigin nota.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×