Innlent

Atvinnugrein leggst af á Akureyri

Nær öllum starfsmönnum Skinnaiðnaðar á Akureyri verður sagt upp um næstu mánaðamót en flestir þeirra eru með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Fimm starfsmenn munu starfa áfram við hrávinnslu skinna á Sauðárkróki og hugsanlega einn eða tveir starfsmenn á skrifstofu félagsins. Ormarr Örlygsson, framkvæmdastjóri Skinnaiðnaðar, segir fátt í spilunum sem komið geti í veg fyrir að starfsemi félagsins leggist að mestu leyti niður. "Reksturinn hefur verið mjög erfiður að undanförnu vegna sölutregðu og gengismála. Þar að auki höfum við þurft að liggja lengi með hráefnisbirgðir en því fylgir hár fjármagnskostnaður. Efnahagsástandið í Evrópu hefur valdið því að færri hafa áhuga á þeim hágæða kuldaflíkum sem framleiddar eru úr afurðum okkar og sumir segja að sölutregðuna megi einnig rekja til hlýnandi loftslags," segir Ormarr. Skinnaiðnaður á Akureyri ehf. er í 54 prósenta eigu Staka en það er félag sem starfsmenn Skinnaiðnaðar eiga. Aðrir eigendur eru Landsbankinn og KEA. "Félagið var stofnað árið 2002 á grunni almenningshlutafélags sem Landsbankinn eignaðist. Reksturinn gekk mjög vel á fyrsta starfsári, heldur verr árið 2003 en í fyrra, og það sem af er ári, hefur reksturinn verið mjög dapur," segir Ormarr. Til að bregðast við erfiðleikum í rekstrinum í fyrra var gripið til uppsagna. "Við sögðum þá upp um 30 manns og fækkuðum niður í um 40 en það dugði ekki til. Við erum að gera allt sem hægt er til að bjarga starfseminni og endanleg niðurstaða ætti að liggja fyrir innan mánaðar en útlitið er ekki gott," segir Ormarr. Samband íslenskra samvinnufélaga (SÍS) byrjaði með skinnaiðnað á Akureyri árið 1923 þegar Gæruverksmiðja SÍS í Listagilinu á Akureyri hóf starfsemi. Nú er útlit fyrir að verkun skinna leggist af á Akureyri en skinnaiðnaðurinn er einu leifarnar af iðnaðarstarfsemi Sambandsins sem eftir eru á Akureyri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×