Atvinnugrein leggst af á Akureyri 3. júní 2005 00:01
Nær öllum starfsmönnum Skinnaiðnaðar á Akureyri verður sagt upp um næstu mánaðamót en flestir þeirra eru með þriggja mánaða uppsagnarfrest. Fimm starfsmenn munu starfa áfram við hrávinnslu skinna á Sauðárkróki og hugsanlega einn eða tveir starfsmenn á skrifstofu félagsins. Ormarr Örlygsson, framkvæmdastjóri Skinnaiðnaðar, segir fátt í spilunum sem komið geti í veg fyrir að starfsemi félagsins leggist að mestu leyti niður. "Reksturinn hefur verið mjög erfiður að undanförnu vegna sölutregðu og gengismála. Þar að auki höfum við þurft að liggja lengi með hráefnisbirgðir en því fylgir hár fjármagnskostnaður. Efnahagsástandið í Evrópu hefur valdið því að færri hafa áhuga á þeim hágæða kuldaflíkum sem framleiddar eru úr afurðum okkar og sumir segja að sölutregðuna megi einnig rekja til hlýnandi loftslags," segir Ormarr. Skinnaiðnaður á Akureyri ehf. er í 54 prósenta eigu Staka en það er félag sem starfsmenn Skinnaiðnaðar eiga. Aðrir eigendur eru Landsbankinn og KEA. "Félagið var stofnað árið 2002 á grunni almenningshlutafélags sem Landsbankinn eignaðist. Reksturinn gekk mjög vel á fyrsta starfsári, heldur verr árið 2003 en í fyrra, og það sem af er ári, hefur reksturinn verið mjög dapur," segir Ormarr. Til að bregðast við erfiðleikum í rekstrinum í fyrra var gripið til uppsagna. "Við sögðum þá upp um 30 manns og fækkuðum niður í um 40 en það dugði ekki til. Við erum að gera allt sem hægt er til að bjarga starfseminni og endanleg niðurstaða ætti að liggja fyrir innan mánaðar en útlitið er ekki gott," segir Ormarr. Samband íslenskra samvinnufélaga (SÍS) byrjaði með skinnaiðnað á Akureyri árið 1923 þegar Gæruverksmiðja SÍS í Listagilinu á Akureyri hóf starfsemi. Nú er útlit fyrir að verkun skinna leggist af á Akureyri en skinnaiðnaðurinn er einu leifarnar af iðnaðarstarfsemi Sambandsins sem eftir eru á Akureyri.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira