Innlent

Árekstur við stórhval?

Áhöfn pólskrar skútu komst við illan leik í höfnina í Vestmannaeyjum í fyrrakvöld eftir að hafa lent í árekstri á hafi úti. Vildi fólkið meina að skútan hefði lent í árekstri við hval en hlið skútunnar er löskuð og tók hún á sig vatn alla leiðina til Vestmannaeyja. Ólafur M Kristinsson, hafnarstjóri, segist aldrei hafa heyrt um árekstur stórhvelis og báta og vel geti verið að um rekavið hafi verið að ræða. Hins vegar sé ljóst að skemmdir á skútu útlendinganna séu það miklar að einhver tími muni líða áður en fólkið geti haldið för sinni áfram til Kanada eins og til stóð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×