Innlent

Þrír taldir með reykeitrun

Þrír menn voru fluttir á heilsugæslustöð Patreksfjarðar vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kom upp í sumarbústað í Tálknafirði aðfaranótt sunnudags. Samkvæmi var í bústaðnum og fjöldi manns var á svæðinu þegar eldur kom upp í geymslu í húsinu. Þegar slökkvilið og lögreglu bar að garði voru gestirnir búnir að slökkva eldinn að mestu og greiðlega gekk að slökkva það bál sem eftir lifði en rétt þótti að flytja þrjá menn á heilsugæsluna til aðhlynningar. Geymslan sem kviknaði í er mikið skemmd af völdum elds og reyks og þá urðu talsverðar skemmdir af völdum reyks í öðrum innviðum bústaðarins. Eldsupptökin liggja ekki fyrir en samkvæmt lögreglunni er ekki ólíklegt að kviknað hafi í út frá glóð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×