Innlent

Átak ASÍ gengur vel

Átak Alþýðusambands Íslands gegn félagslegum undirboðum og ólöglegri atvinnustarfsemi gengur vel en það hefur nú staðið yfir í rúman mánuð. Á því tímabili hafa borist um 40 ábendingar um hugsanlega ólöglega atvinnustarfsemi og koma þær víða að á landinu. Að sögn Halldórs Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóra sambandsins, eru flestar ábendingarnar vegna fólks í bygginga- og veitingageiranum suðvestanlands en einnig talsvert um ábendingar vegna verktaka sunnanlands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×