Innlent

Aron Pálmi fær stuðning í vestri

RJF-hópurinn, sem vinnur að því að fá Aron Pálma Ágústsson lausan úr fangelsi í Texas, hefur fengið stuðning frá bandarískum safnara. Maðurinn, sem heitir Scott Smith, varð mikið um þegar hann las um sögu Arons Pálma í framhaldi af bréfasendingu RJF-hópsins til ríkisstjóra Texas. Í bréfinu var meðal annars beiðni frá biskupi Íslands sem sagði að beðið væri fyrir Aroni Pálma í kirkjum landsins. Smith hefur ritað bréf vegna málsins bæði til ríkisstjórans og George Bush eldri sem er honum kunnugur. Þá hringdi hann í Aron Pálma til að hughreysta hann og tjá honum stuðning sinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×