Innlent

Fjölbýlishús selt á 10 milljónir

Nokkru tilboð bárust bæjarráði Vesturbyggðar í fjölbýlishús á Bíldudal í maí að því er fram kemur á fréttavefnum Bæjarins besta. Fjölbýlishúsið var selt Mjóna ehf. sem bauð hæst, eða rúmar tíu milljónir króna, en á höfuðborgarsvæðinu fæst varla 50 fermetra íbúð fyrir þá upphæð. Ellefu íbúðir eru í húsinu en það er um 914 fermetrar af stærð og stendur á 1500 fermetra lóð. Fasteignamat eignarinnar er rúmar 23 milljónir króna og brunabótamat ríflega 121 milljón króna. Á bæjarráðsfundi í gær var bókað að tvö lítillega hærri tilboð hefðu borist í eignina en ekki var hægt að taka þeim þar sem að tilboðsfrestur var runnin út.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×