Innlent

Von á fleiri uppsögnum

Útlitið er ekki gott fyrir fyrirtæki sem eru undir hælnum á áframhaldandi styrk krónunnar, segir greiningardeild Íslandsbanka. Búast megi við frekari uppsögnum og gjaldþrotum. Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, tekur undir þetta og hvetur stjórnvöld til að bregðast við með því að draga úr þenslu. Fjármálaspekingar spá því að krónan haldist sterk áfram, að minnsta kosti fram á næsta ár. Þannig megi gefa sér að samkeppnisstaða fyrirtækja sem byggja á útflutningi haldist áfram slæm. Greiningardeild Íslandsbanka fjallar um þessa þróun í morgunkorni sínu í dag og segir að við þetta megi bæta að útlit sé fyrir meiri launahækkanir hér á landi en í helstu viðskiptalöndunum. Frekari uppsagnir, gjaldþrot og lokanir blasi við í útflutningsgreinum og fyrirtækjum í framleiðslu sem etja kappi við erlenda samkeppni. Hátt í 140 manns í fiskvinnslu og iðnaði í fjórum fyrirtækjum hefur verið sagt upp störfum eða verður sagt upp á næstunni. Friðrik segir nauðsynlegt að gripið verði inn í þessa þróun. Aðspurður hvað sé hægt að gera segir hann að Seðlabankinn verði að hætta að hækka stýrivexti til að styrkja krónuna því það komi ekki aðeins niður á sjávarútvegi heldur einnig öllum samkeppnisiðnaði og ferðaþjónustu. „Þarna er verið að grafa undan grunni íslensks efnahagslífs,“ segir Friðrik. Friðrik finnst undarlegt að atvinnurekstur sem er í miklum taprekstri þurfi að borga auðlindaskatt sem er veiðigjald og segir það aðeins gera erfiðara fyrir. Spurður hvað honum finnst um stóriðjuframkvæmdir stjórnvalda segir hann að það verði að skipuleggja þær með tilliti til þess hvaða áhrif þær hafi á annan atvinnurekstur. Friðrik telur hugsanlega hagstæðara að taka upp evru án inngöngu í Evrópusambandið, verði Seðlabankanum ekki beitt á réttan hátt, því ekki sé fyrirséð að ástandið geti orðið verra en nú  Búast má við að Seðlabankinn hækki stýrivexti á næstu dögum, jafnvel eftir lokun markaða í dag, þ.e. eftir klukkan fjögur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×