Innlent

Fyrsta skemmtiferðaskipið komið

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarins er komið til Reykjavíkur. Það er japanska skipið Asuka sem er í heimsreisu. Dvölin á Íslandi verður ekki löng því brottför verður klukkan 19 í kvöld. Asuka er tuttugu og níu þúsund tonna skip. Heimsóknir skemmtiferðaskipa verða tíðar í sumar því sjötíu og átta skip hafa boðað komu sína sem er nokkur fjölgun frá því í fyrra. Þegar er farið að boða komu skipa næsta sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×