Innlent

Alvarlegt umferðarslys í Grindavík

Alvarlegt umferðarslys varð á Austurvegi í Grindavík í gærkvöldi. Bíl var ekið á ljósastaur og slösuðust bílstjóri og farþegi í framsæti alvarlega. Farþeganum er haldið sofandi í öndunarvél að sögn lögreglu. Tveir farþegar sem voru í aftursæti bifreiðarinnar slösuðust minna. Öll fjögur voru flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Bíllinn er gjörónýtur. Grunur leikur á að um hraðakstur hafi verið að ræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×