Innlent

Menningarhús fyrir árslok 2007

Menningarhús á Akureyri verður tilbúið eftir tvö og hálft ár. Verkefninu var hleypt af stokkunum í dag. Bæjarstjórn Akureyrar hefur nú tekið endanlega ákvörðun um byggingu menningarhússins og er heildarkostnaður áætlaður 1.370 milljónir króna. Því hefur verið valinn staður í miðbæ Akureyrar, á uppfyllingu við Torfunef við gatnamót Strandgötu og Glerárgötu. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri og Sigurður Hallgrímsson, arkitekt fyrir hönd Arkþings, undirrituðu í dag samning um hönnun hússins og tónlistarskóla sem verður einnig í húsinu. Stefnt er að því að smíði hússins verði boðin út næsta vor og á það að vera tilbúið til notkunar fyrir árslok 2007.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×