Innlent

Sjö þúsund nýir bílar

Aldrei hafa jafn margir bílar selst á jafn stuttum tíma hér á landi og í maímánuði. Þá voru nýskráðir 2.012 nýir fólksbílar og þá hafa selst meira en 7.000 nýir bílar það sem af er ári. Metið í nýskráningu bíla á ári síðustu ár eru rúmlega 15 þúsund bílar árið 1999. Ef fram heldur sem horfir fellur það met í ár. Þórður Kristinn Jóhannesson aðstoðarframkvæmdastjóri fjármögnunarfyrirtækisins Glitnis segir að líklega megi að hluta til skýra þessa sprengingu með því að bílaleigurnar séu að endurnýja flota sinn fyrir sumarið. Hann segir það ljóst að að minnsta kosti 50-60 prósent af þessum nýju bílum séu fjármagnaðir af fyrirtækjum sem sérhæfa sig í því, fyrirtækjum eins og Glitni, Lýsingu og SP fjármögnun. Þórður segir að markaðurinn hafi breyst nokkuð frá síðasta ári. Þá hafi margir viljað nýta sér rekstrarleigusamninga en nú sé það að færast mjög í vöxt að einstaklingar vilji sjálfir "eiga" bílinn, það er kaupa hann á lánum. Hann telur einnig nær öruggt að þeir fáu sem staðgreiða bílinn hjá umboði hafi þá margir tekið bankalán og fjármagni þannig kaupin á annan hátt án þess þó að eiga beinlínis fyrir bílnum. P. Samúelsson hf. umboðsaðili Toyota á Íslandi á ansi stóra sneið af markaðnum ef litið er á tölur frá Umferðarstofu. Í maímánuði einum seldi umboðið meira en 600 nýja bíla. Haraldur Þór Stefánsson sölustjóri P. Samúelsson segist aldrei hafa kynnst öðru eins. Hann segir að bílaleigurnar endurnýi alltaf flota sína á þessum árstíma og það sé með svipuðu móti nú og fyrri ár og því hljóti sprengingin að skýrast af því að einstaklingar séu að endurnýja. Hann segir fólk vera að kaupa allt frá smábílum upp í jeppa og að P. Samúelsson hafi til að mynda selt meira en 100 nýja Land Cruiser-jeppa í maí. Nú á fyrstu þremur dögum júnímánaðar hafa þeir hjá P. Samúelsson þegar selt 54 nýja bíla þannig að júní gæti slegið maí út ef fram heldur sem horfir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×