Innlent

Þakka guði stuðninginn

"Ég er mjög þakklátur fyrir bréfin og þessa fallegu hugsun. Ég þakka guði á hverjum degi fyrir að fólk sé að hugsa til mín," segir Aron Pálmi Ágústsson í Texas í Bandaríkjunum. RJF-hópurinn, sem berst fyrir lausn Arons Pálma, sendi í gær bréf til ríkisstjóra Texas þar sem fram kom ósk um að hann hlutaðist til um að Aroni Pálma yrði veitt lausn úr betrunarvistinni. Bréfi hópsins fylgir bænabréf frá biskupi Íslands. Aron Pálmi á eftir að ljúka rúmum tveimur árum af tíu ára betrunarvist sem hann var dæmdur til ytra. Hann sagðist í samtali við Fréttablaðið vonast til að bréfið hlyti náð fyrir augum yfirvalda í Texas. "Því fyrr því betra sem ég kemst til Íslands. Ég bið til guðs á hverjum degi að ég komist til Íslands." Hann segir dagana líða hægt og hann hafi lítið fyrir stafni. Hann geti farið í verslun og þvegið þvott og fari auk þess í kirkju en fái ekki að fara jafnt oft og hann kysi sjálfur. "Ég er að reyna að fá leyfi til að fara þrisvar í viku en fæ bara að fara einu sinni," segir Aron Pálmi. Valgerður Hermannsdóttir, móðursystir Arons, kom til Texas í gær og mun dvelja hjá honum ásamt frænkum Arons Pálma í mánuð. Valgerður hafði með sér afrit af bréfum til yfirvalda í Texas fyrir fangelsisyfirvöld. RJF-hópurinn, sem lætur sig réttlæti í máli Arons Pálma varða, er skipaður mönnum sem upphaflega komu að máli Bobby Fischer. Hópurinn berst fyrir heimfararleyfi og frelsi Arons Pálma. Í bréfi hópsins til ríkisstjórans segir að íslensk stjórnvöld og sendiráð Íslands í Washington muni leggja kapp á að uppfylla öll þau skilyrði sem kunni að vera sett af hálfu fangelsisyfirvalda í Texas. Aron Pálmi býr einn í leiguíbúð í Beumont í Texas, sem stjúpfaðir hans ber kostnað af, en á sér þá ósk heitasta að setjast að á Íslandi og byggja upp líf sitt eftir harmleikinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×