Uppsagnirnar reiðarslag 2. júní 2005 00:01 "
Þetta er reiðarslag," sagði Jón Páll Jakobsson, sjómaður á Bíldudal, í Hádegisútvarpi Talstöðvarinnar í gær. Jón Páll og eiginkona hans misstu bæði vinnuna þegar öllum starfsmönnum fiskvinnslustöðvarinnar Bílddælings var sagt upp um mánaðamótin. Hjónin eiga fjögur börn á aldrinum tveggja til tíu ára. "Það hefur að sjálfsögðu slæma þýðingu fyrir byggðarlagið þegar svo margir missa vinnuna," segir Jón Páll en ætla má að nær annar hver vinnandi maður í byggðinni hafi fengið uppsagnarbréf þegar fimmtíu starfsmönnum Bílddælings var sagt upp. Skel Bílddælinga er þó orðin hörð að sögn Jóns Páls enda Bílddælingur fimmta fyrirtækið í röðinni síðan árið 1992. Jón Páll telur eigin möguleika á starfi annars staðar ágæta en hann gæti þurft að sækja vinnu fjarri heimilinu. Erfiðara sé fyrir konu hans að fá aðra vinnu. Jón Páll segir fjölskylduna ekki ætla að yfirgefa Bíldudal. Til standi að reisa kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal en vinnsla á ekki að hefjast fyrr en á haustmánuðum árið 2006. Jón Páll segir fólk almennt hætt að hugsa mikið um hvað við taki hjá byggðarlaginu. "Baráttuandinn er alveg horfinn," segir Jón Páll. "Mjög erfitt er að yfirgefa þorpið enda ómögulegt að taka húsið með sér." Lítil hreyfing er á fasteignamarkaði í bænum og þar býr fátt ungt fólk. "Byggðarlagið samanstendur að mestu af fólki sem komið er yfir miðjan aldur og á húsin sín skuldlaus," segir Jón Páll. Forsvarsmenn Bílddælings hafa sagst ætla að nota eins mánaðar uppsagnarfrest starfsfólksins til þess að endurskipuleggja reksturinn. Jón Páll segist vona það besta varðandi framtíð fyrirtækisins en ljóst sé að róðurinn verði þungur. "Reksturinn hefur verið mjög erfiður síðan árið 1992 þegar kvótinn fór enda höfum við síðan þá engan aðgang að auðlindinni."
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira