Innlent

Tveir halda áfram tilboðsvinnu

Austurhöfn-TR ehf. hefur boðið fyrirtækjunum Fasteign og Klasa annars vegar og Portus Group hins vegar að taka áfram þátt í samningskaupaferlinu vegna fyrirhugaðrar tónlistar- og ráðstefnumiðstöðvar. Þessir tveir aðilar hafa því verið beðnir um að endurbæta og þróa sínar tillögur og tilboð áfram. Í næstu viku hefst vinna þeirra við að fara yfir ábendingar og í framhaldinu er þess vænst að þeir reyni að uppfylla sem best öll skilyrði og ná fram hagkvæmri og ákjósanlegri lausn, bæði á byggingum og rekstri. Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar-TR, segir að eftir sex til tíu vikur komi í ljós hvaða tilboði verði tekið. Þá verði líklega gengið til samninga og hefjast svo framkvæmdir í lok næsta árs. Þó er hugsanlegt að tilboðsgjafar verði beðnir um að bæta boð sín enn frekar áður en ákveðið verður við hvort fyrirtækið verði gengið til samninga. Í haust verður síðan haldin sýning á tillögum og líkönum tilboðsgjafanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×