Innlent

Kolféllu í fjármálalæsi

Framhaldsskólanemar fengu falleinkunn í fjármálalæsi í könnun sem Breki Karlsson, nemandi í Háskólanum í Reykjavík, gerði í vetur. Breki segir að niðurstaðan hafi verið skelfileg. Könnunin hafi staðfest grunsemdir sínar en sér hafi komið óvart hve mikinn yfirdrátt nemarnir hafa. Um 17,5 prósent framhaldsskólanema hafa yfirdrátt í bönkum og er yfirdrátturinn 146 þúsund krónur að meðaltali. Hæsti yfirdrátturinn nam þó 600 þúsundum króna en algengastur var yfirdráttur að fjárhæð 50 þúsund krónur. Tæp 24 prósent nemanna eru með mánaðarlegar afborganir af lánum og 13 prósent hafa lent í vanskilum en 72,4 prósent hafa aldrei reynt að fylla út skattframtal. 63 prósent þeirra vita ekki hvað það þýðir að taka gengistryggt bílalán. Breki sendi 40 spurninga krossapróf til tæplega 70 framhaldsskólanema. "Meðaleinkunn var 4,6 sem er fall. Skólakerfið virðist ekki gera ráð fyrir að þurfa að mennta krakka í þessum efnum," segir hann. Sjálfur fékk hann 9,5 sem var hæsta einkunnin í vor.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×