Innlent

Átökin um Austurvöll

Fjörlegar umræður hafa spunnist um ljósmyndasýningarhald á Austurvelli í kjölfar bréfs Halldórs Blöndal, forseta Alþingis, til Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra en í því fer hann fram á að borgin láti af sýningarhaldi á Austurvelli enda finnist honum óviðeigandi að völlurinn sé notaður með þessum hætti. Margir eru ósammála Halldóri en segja engu að síður að lítil prýði sé af steinstöplunum sem ljósmyndirnar hvíla á. Skemmst er frá því að segja að borgaryfirvöld hyggjast virða erindi þingforsetans að vettugi og hefst sýning á ljósmyndum Ragnars Axelssonar 24. júní. Ráðamenn Reykjavíkur eru vitaskuld í fullum rétti þegar þeir ákveða hvernig Austurvöllur skuli notaður en engu að síður er eðlilegt að starfsmenn nærliggjandi húsa hafi ríka skoðun á því sem þar fer fram. Ásdís Sigurðardóttir vinnur á Thorvaldsen og er hrifin af sýningunum. "Mér finnst þetta æðislegt. Austurvöllur er frábær staður og mér finnst frábært að eitthvað svona sniðugt sé gert hérna því þetta lífgar upp á miðbæinn." Hún telur Austurvöll alls ekki vanvirtan með sýningarhaldinu og telur grasið ekki fara illa þótt fólk spígspori um það og skoði myndirnar. Sonja Magnúsdóttir starfar í móttökunni á Hótel Borg í sumar. "Fyrir ferðamenn er þetta örugglega mjög skemmtilegt," segir hún en það eru helst útlendingar sem dvelja á hótelinu. Líklegt verður að telja að flestir þeirra leggi leið sína yfir Pósthússtrætið og berji myndirnar augum. "Mér finnst í fínu lagi að á Austurvelli sé annað slagið eitthvað að sjá fyrir landsmenn og erlenda ferðamenn en það má ekki ofgera því," segir Sonja sem þó hefur smá áhyggjur af grasinu. Séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur er á báðum áttum í málinu en tekur skýrt fram að hann sé feginn því hvað borgin hefur lifnað yfir sumarið. "Ég er mjög glaður yfir þeirri list sem þarna hefur verið sýnd undanfarin ár og vænti einnig góðs af listinni nú í sumar. En ég neita því ekki að mér finnst steinsteypan dálítið mikil og velti fyrir mér hvort ekki sé skynsamlegra, að minnsta kosti stundum, að fara með allt þetta grjót á Ingólfstorg, þar er grjót hvort eð er."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×