Innlent

Oddur vaknar klukkan sex

"Það hefur verið blíða á Kárahnjúkum síðustu daga," segir Oddur Friðriksson, sem vinnur að virkjunarfræmkvæmdunum þar efra. Þegar svo háttar til starfa menn í glaða sólskini frá morgni til kvölds. "Glugginn minn snýr í austur og ég er glaðvaknaður klukkan sex á morgnana." Oddur grætur það ekki enda fegurðin talsverð. "Morgnarnir hér eru fallegir og kvöldin líka," segir hann. Fimm stiga hiti var á Kárahnjúkum um miðjan dag í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×