Innlent

Höskuldur hættir hjá ÁTVR

Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, hefur óskað eftir lausn frá embætti frá og með fyrsta september næstkomandi og hefur fjármálaráðherra fallist á það. Höskuldur hefur verið forstjóri ÁTVR í tæplega 20 ár, eða frá 1. apríl 1986. Þar áður var hann ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu um 11 ára skeið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×