Innlent

Tveir vinna áfram að tónlistarhúsi

Austurhöfn hefur valið tvo af þremur þátttakendum í tillagna- og tilboðsgerð vegna byggingar tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar við höfnina í Reykjavík til áframhaldandi vinnu. Fyrirtækin sem um ræðir eru Fasteign og Klasi annars vegar og Portus Group hins vegar en þau fá nú tækifæri til að endurbæta og þróa tillögur sínar að uppbyggingu við höfnina m.a. með því að taka mið af þeim ábendingum sem ráðgjafar á vegum Austurhafnar hafa sett fram. Fyritækin tvö skila svo endurskoðuðum tillögum sínum einhver tíma á tímabilinu miðjum júlí fram í byrjun ágúst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×