Innlent

Segja póstinn of þungan

Bréfberar í Kópavogi eru ósáttir við aukið álag í vinnunni vegna dreifingar Blaðsins og íhuga jafnvel að segja upp störfum. Bréfberi í hundrað prósent starfi fer suma daga af stað með hátt í 120 kíló meðferðis. Sigríður Ingólfsdóttir, bréfberi í Kópavogi, segir miklar breytingar hafa orðið á starfinu þegar dreifing Blaðsins hófst, en Íslandspóstur sér um dreifinguna. Að auki eru líka oft fimm til sex önnur dreifirit og tekur oftast tvo til þrjá klukkutíma fyrir bréfbera að brjóta dreifiritin í hentugt brot áður en lagt er af stað. Sigríður segir laun sín hafa hækkað eilítið þegar álagið var aukið en hvað finnst henni Íslandspóstur þurfa að gera til að mæta þessu aukna álagi? Hún segir að launin þurfi að hækka mun meira, en mánaðarlaunin séu nú rúmlega 100 þúsund krónur. Skólakrakkar hætti við að starfa hjá Póstinum í sumar vegna þess að mun betur borguð störf séu í boði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×