Innlent

ÍAV semur um jarðboranir

Íslenskir aðalverktakar og Hitaveita Suðurnesja hafa undirritað samning um borun á tíu sjótökuholum vegna Reykjanesvirkjunar. Þetta verður fyrsta verkefni ÍAV á sviði jarðborana en fyrirtækið Jarðboranir hf. hefur fram til þessa setið nánast eitt að þessum markaði hérlendis. Fyrirtækin tvö kepptu í útboði um verkið en það felst í borun á holum til öflunar kælivatns vegna virkjunarinnar. Jarðboranir buðu 197 milljónir króna en Íslenskir aðalverktakar 186 milljónir króna og fengu því verkið. Gert er ráð fyrir að boranir hefjist eftir tvo mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×