Innlent

Yfir 100% verðmunur á mjólkurvöru

Meira en hundrað prósenta verðmunur var á mjólkurvörum, ostum og kjötvörum í verslunum samkvæmt verðkönnun Alþýðusambands Íslands. Mesti munurinn á hæsta og lægsta verði í þessum vöruflokkum var á Léttu viðbiti, eða 295 prósent. Dýrast reyndist þetta viðbit hjá Vöruvali í Vestmannaeyjum, 154 krónur, en ódýrast hjá Bónus á Akureyri, 39 krónur, tveimur krónum ódýrara en í öðrum Bónusverslunum í könnuninni. Minnstur reyndist munurinn á Skólaosti eða 26 prósent.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×