Innlent

Ný flugvél í notkun

Flugfélagið Ernir hefur tekið nýja flugvél í notkun. Fyrsta ferð vélarinnar var eins og hálfs klukkustundar útsýnisflug um Suðurland sem kallast Jöklar og eldfjöll þar sem flogið var að Gullfossi og Geysi og yfir Tindfjalla- og Eyjafjallajökul. Flugvélin er eins hreyfils Cessna 207 og getur tekið allt að sjö farþega. Ernir rekur nú fjórar flugvélar; tvær níu farþega og tvær eins hreyfils vélar sem taka sjö og níu farþega.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×