Líður að lokun Hótel Bifrastar 1. júní 2005 00:01
Þeir eru sjálfsagt margir ferðamennirnir sem hafa einhvern tímann áð að Hótel Bifröst að sumarlagi. Vöxtur háskólasamfélagsins þar er hins vegar orðinn svo ör að þetta er síðasta sumarið sem það verður hægt. Það virðist ekki mikið um að vera að Bifröst þessa dagana. Nemendur voru brautskráðir á laugardaginn og flestir aðrir eru haldnir til sumarstarfa annars staðar. Hótelið opnaði í dag og fyrstu gestir fara að tínast inn í vikunni. Þetta er hins vegar sjaldgæft millibilsástand; á þessum stað er nefnilega allt á fleygiferð. Þó að launakönnun meðal útskrifaðra nemenda bendi til þess að konur fái þónokkru lægri laun er karlar eftir útskrift þá er ekki lát á uppbyggingunni á Bifröst. Hún er svo mikil að það líður að lokum hótelrekstrar á svæðinu. Sumarið í ár verður það fimmtugasta og síðasta sem hótel verður rekið á staðnum. Ástæðan er einföld. Viðskiptaháskólinn á Bifröst hefur stækkað gríðarlega og aukið starfsemi sína og næsta sumar verður nemendum boðið upp á að sleppa sumarfríinu, halda áfram að læra á sumarönninni og stytta þar með námstímann. Þetta þýðir að ekki verður unnt að reka hótel samhliða eins og gert hefur verið síðustu fjörutíu og níu sumur. Hótelið er nú hluti af Fosshótelkeðjunni sem er í eigu ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar. Ætlunin er að byggja upp hótel í Reykholti í staðinn, að sögn starfsfólks á Bifröst sem segist munu sakna staðarins. Heilmiklar framkvæmdir verða í gangi yfir sumartímann. Ein bygging á að vera tilbúin í ágúst þar sem efri hæðirnar munu hýsa nemendur en neðsta hæðin verður aðsetur ýmissa nýrra rannsóknastofnana, svo sem Rannsóknarseturs verslunarinnar og Evrópufræðaseturs.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira