Innlent

Hátt gengi bitnar á landsbyggðinni

Öllum starfsmönnum fjögurra fyrirtækja í útflutningsgreinum á landsbyggðinni fengu uppsagnarbréf um mánaðamótin. Bílddælingur á Bíldudal sagði upp 50 starfsmönnum; Skinnaiðnaður á Akureyri tæplega 40; frystihús Skinneyjar-Þinganess á Reyðarfirði sagði upp 20 starfsmönnum og landvinnsla Samherja á Stöðvarfirði sagði upp rúmlega 30 starfsmönnum. Alls eru þetta um 140 manns í fjórum byggðarlögum. Forsvarsmenn þessara fyrirtækja hafa vísað til óvenju sterkrar stöðu íslensku krónunnar um þessar mundir sem hluta vandans. Sé gengið hátt fæst lægra verð í íslenskum krónum fyrir þær vörur sem fluttar eru út. Álvers- og virkjanaframkvæmdir á Austurlandi eru mikilvæg ástæða hins háa gengis, en nú er fjárfest fyrir hundruð milljarða fyrir austan. Fleira kemur þó til, þar sem miklar breytingar í íslensku atvinnulífi hafa ýtt undir hækkun gengisins. "Það lá alltaf fyrir þegar ráðist var í framkvæmdirnar að mótvægisaðgerðir Seðlabankans myndu ýta öðrum útflutningsgreinum til hliðar," sagði Ásgeir Jónsson, hagfræðingur hjá greiningardeild KB banka. "Landsbyggðin byggir að miklu leyti á útflutningi og því kemur hátt gengi mjög illa við hana." Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur hjá greiningardeild Landsbankans, tekur undir þetta sjónarmið. "Við hjá Landsbankanum höfum í nokkurn tíma bent á að sterkt gengi myndi sérstaklega koma niður á landsbyggðinni þar sem atvinnulífið er einhæft og sjávarútvegur og ferðaþjónusta vega þungt," sagði Edda Rós. "Því miður virðist það nú vera að koma í ljós." Ferðaþjónustan á einnig undir högg að sækja vegna hins háa gengis, en ekki ber jafnmikið á því í fjölmiðlum þar sem fyrirtækin eru smærri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×