Innlent

Fjórðungi bæjarbúa sagt upp

Annar hver vinnandi maður á Bíldudal fékk í gær uppsagnarbréf. Ákveðið hefur verið að loka fiskvinnslunni Bílddælingi, þar sem einn af hverjum fjórum íbúum í bænum starfar. Fimmtíu starfsmenn Bílddælings fengu í gær uppsagnarbréf og taka uppsagnirnar gildi eftir mánuð. Á næstu vikum verður starfsemi Bílddælings endurskoðuð og forsendur rekstursins endurmetnar. Fyrirtækið er stærsti atvinnuveitandinn í þorpinu en þar búa rúmlega 220 manns og því hafa uppsagnirnar gríðarleg áhrif. „Annar hver vinnandi maður verður atvinnulaus og lausn er ekki í sjónmáli," sagði bæjarstjóri Vesturbyggðar, Guðmundur Guðlaugsson, við Bylgjuna í hádeginu. Jens Valdimarsson, framkvæmdastjóri Bílddælings, segir ekki lengur grundvöll fyrir rekstrinum. Tvennt komi þar aðallega til: Annars vegar spili sterk gengi íslensku krónunnar þarna inn í og hins vegar var gert ráð fyrir byggðarkvóta til að koma vinnslunniá lappir, en það gekk ekki eftir. Jens segist lifa í þeirri von að hægt verði að draga uppsagnirnar til baka. Aðspurður hvort fyrirtækið hafi ekki töluverða samfélagslega ábyrgð á Bíldudal, verandi stærsti atvinnuveitandinn í bænum, spyr Jens á móti hvort það megi ekki segja um alla þjóðina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×