Innlent

60-70 ára gömul tré brunnu

Hátt í hundrað tré skemmdust í sinubruna í hólma í Elliðaá í dag. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en þurrkurinn að undanförnu hefur gert aðstæður ákjósanlegar fyrir brennuvarga en talið er víst að kveikt hafi verið í. Óskar Baldursson, verkstjóri hjá Garðyrkjustjóra borgarinnar sem umsjón hefur með trjánum í hólmanum, segir það skelfilegt þegar sinubruni nái að læsa sig í svona skógarreiti. Hluti af trjánum í hólmanum er mjög gamall, allt upp í 60-70 ára. Ekki er búið að meta tjónið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×