Innlent

Dreifði röngum skilaboðum

Netskiptanir sem um ræðir eru staðsettir í Kópavogi og Ármúla en á öllu spítalanetinu eru 260 slíkir skiptar. Bilunin lýsti sér þannig að skiptarnir fóru að dreifa röngum skilaboðum út á netið með þeim afleiðingum að bandbreiddin yfirfylltist og teppti alla aðra umferð. Unnið hefur verið að endurbótum á netkerfi spítalans og fyrir hefur legið nokkuð kostnaðarsöm áætlun um endurnýjun á búnaði sem talið er að hefði komið í veg fyrir það sem gerðist í fyrradag. Biluðu skiptarnir verða sendir erlendis til Cisco systems til að greina frekar ástæður bilunarinnar. Þessir skiptar eru hluti af burðarlagi fyrir gagna- og símaflutninginn á spítalanetinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×