Innlent

Þrefalt fleiri karlar gefa blóð

Þrisvar sinnum fleiri karlar en konur gefa blóð reglulega hjá Blóðbankanum. Hins vegar er hlutfall milli karla og kvenna jafnt meðal nýrra blóðgjafa. Meginástæðan fyrir brottfalli kvenna í hópi blóðgjafa er sögð meðganga og brjóstagjöf en þá mega þær ekki gefa blóð svo þær gangi ekki á birgðir líkamans. Svo virðist sem að margar konur skili sér ekki aftur í blóðgjöf að þeim tíma liðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blóðbankanum og Og Vodafone sem vinna nú saman að því að gera Blóðbankann sýnilegri. Og Vodafone hefur m.a. stutt kynningar- og fræðslustarf Blóðbankans frá árinu 2004 og í fyrra var lögð áhersla á að Blóðbankinn þyrfti 70 blóðgjafa á dag til þess að svara þeirri þörf sem væri fyrir hendi. Í ár verður lögð áhersla á auka hlut kvenna í hópi reglulegra blóðgjafa. Blóðbankinn fékk rúmlega 17 þúsund heimsóknir í tengslum við blóðgjafir árið 2004. Af þeim hópi sem gefa blóðsýni á hverju ári geta um 10 prósent ekki orðið eiginlegir blóðgjafar af ýmsum ástæðum. Blóðgjafi þarf að vera heilsuhraustur, má ekki neyta lyfja, vera á aldrinum 18-60 ára og yfir 50 kg í þyngd. Karlar geta gefið blóð þriðja hvern mánuð og konur fjórða hvern mánuð. Rúmlega helmingur þeirra sem gefa blóðsýni skilar sér aftur í blóðgjöf.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×