Innlent

Enn enginn lax upp úr Norðurá

Enginn lax er kominn á land úr Norðurá en áin opnaði venju samkvæmt klukkan sjö í morgun. Horfa þarf aftur til ársins 1989 til finna opnunardag þar sem veiðin var engin að sögn formanns Stangaveiðifélags Reykjavíkur á síðunni Vötn og veiði.is. Hann segist ekki ætla lenda í slíku núna og er viss um að lax náist í seinni lotunni sem hófst klukkan þrjú.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×