Innlent

Vill skapa ný störf með Samherja

Sveitarstjóri Austurbyggðar vonast til og hefur trú á að það takist að skapa einhver ný störf á Stöðvarfirði í samvinnu við Samherja í stað þeirra starfa sem tapast í haust. Hann segir Stöðvarfjörð enn álitlegan búsetukost. Ljóst er að 32 munu missa vinnuna í sveitarfélaginu þann 1.september þegar Samherji flytur alla sína landvinnslu til Dalvíkur. Samherji hefur verið langstærsti atvinnurekandinn á Stöðvarfirði um langt árabil en sveitarfélagið sjálft kemur þar á eftir. Steinþór Pétursson, sveitarstjóri Austurbyggðar, segir að unnið hafi verið að því að leita lausna frá því í febrúar þegar ljóst var hvað koma skyldi. En treysta íbúar á að Samherji muni leggja sitt af mörkum við að ný störf skapist? Steinþór játar því og segir Samherja vinna ásamt sveitarfélaginu að málinu. Svæðið hafi verið greint og einnig það vinnuafl sem sé þar. Samherjamenn hafi ekki útilokað í bréfi, sem dreift hafi verið í vetur, að þeir yrðu með einhverja smærri vinnslu á Stöðvarfirði. Hluti þeirra sem munu missa vinnuna getur sótt vinnu til nágrannasveitarfélaganna en Steinþór segir það þó ekki henta öllum og því verði ný störf að verða til í þorpinu sjálfu. Spurður hvort hann óttist ekki brottflutning frá svæðinu segir Steinþór að Stöðvarfjörður sé mjög ákjósanlegur búseturkostur fyrir þá sem vilji setjast að á Mið-Austurlandi. Þetta sé ekki neinn dauðadómur yfir svæðinu en hins vegar viti hann að þegar svona gerist verði ákveðið rót á fólki. Verði jarðgöng á milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar ekki opnuð fyrr en í október ætlar Samherji að greiða þeim starfsmönnum laun í september sem ekki verða komnir með vinnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×