Innlent

Veiði hafin í Norðurá

Laxveiðitímabilið hófst í dag. Klukkan sjö í morgun mættu veiðimenn á bakka Norðurár í Borgarfirði sem kölluð hefur verið drottning áa. Það er skemmst frá því að segja að núna klukkan tíu var enginn lax kominn á land og veiðimenn einskis orðið varir. Það er stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem hóf veiðina í morgun samkvæmt hefð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×