Innlent

Gríðarlegur verðmunur á gulrótum

MYND/Sigurður Jökull
Meira en 1450 prósenta munur er á hæsta og lægsta verði í matvöruverslun, samkvæmt nýrri könnun Alþýðusambands Íslands. Þessi gríðarlegi verðurmunur var á gulrótum sem reyndust langdýrastar í 10-11, 698 krónur kílóið, en ódýrastar í Bónus, 45 krónur. Könnunin var gerð fyrir viku um allt land og náði til 63 verslana. Tuttugu vöruflokkar voru kannaðir og reyndist mesti verðmunur á allri körfunni vera yfir hundrað prósent og yfir 200 prósent í þrettán af tuttugu vöruflokkum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×