Parvó-veikin á skrið aftur 31. maí 2005 00:01
Í vor hafa greinst óvenjumörg tilfelli af Parvó-veiki í hvolpum og unghundum, að sögn Katrínar Harðardóttur dýralæknis á Dýraspítalanum í Víðidal. Þessi illræmda veiki heltekur hunda og getur dregið þá til dauða. Hún smitast milli hunda, en menn geta jafnframt borið hana á milli þeirra. "Það hefur verið miklu meira um parvó-veiki í vor heldur en við höfum séð í mörg ár," sagði Katrín. "Því miður erum við ekki viss um hvað veldur þessu. Það eru að vísu komin ný bóluefni og með þeim er einungis bólusett tvisvar, í stað þrisvar sinnum með þeim gömlu. Það er spurning hvort tvær bólusetningar dugi, en leiðbeiningar með nýju lyfjunum segja að þær eigi að duga. Ég tel að það þurfi að endurskoða þetta ef þróunin verður á sama veg og verið hefur." Katrín sagði að parvó-veikin legðist fyrst og fremst á hvolpa. Í vor hefði hún einnig sést í stálpuðum hundum á bilinu 6 mánaða til eins árs, sem jafnvel hefðu verið bólusettir. Nokkrir hvolpar hefðu drepist úr veikinni. Hún lýsir sér með blóðuppköstum, niðurgangi og algjöru lystarleysi. Albert Steingrímsson hjá Hundaskóla Hundaræktarfélags Íslands sagði að í apríl hefði hvolpanámskeiðum verið frestað um hálfan mánuð af öryggisástæðum vegna parvó-veikinnar. Kennslusvæðin hefðu verið sótthreinsuð og aðrar varúðarráðstafanir gerðar. "Þessi pest kom upp snemma í vor þegar hlýindin voru sem mest," sagði hann. "Ræktendur brýna fyrir fólki að fara hvorki með óbólusetta hvolpa né þá sem aðeins hafa fengið eina sprautu inn á hundasvæði eða á námskeið. Þá eru hverfandi líkur á að þeir smitist. Fólk er því orðið mjög meðvitað um þetta og fer varlega. Við erum alltaf í góðu samstarfi við dýralækna. Ef þeir koma með tilkynningar til okkar um eitthvað sem þarf að varast þá gerum við strax ráðstafanir."
Fréttir Innlent Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira