Erlent

Krókódíll í fjölskyldusundlauginni

Bandarísk fjölskylda fékk óvænta og óþægilega heimsókn svo ekki sé meira sagt í sumarhús þeirra í Suður-Flórída í gær þegar krókódíll ákvað að fá sér sundsprett í sundlaug þeirra í bakgarði hússins. Krókódílatemjari var fenginn til að fjarlægja tæplega tveggja metra langan krókódílinn sem var þó ekki á þeirri skoðun að fara alveg strax og streyttist vel á móti í þó nokkurn tíma. Að lokum gafst krókódíllinn þó upp og var fluttur aftur til síns heima út í síkin og urðu engin slys á fólki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×