Auglýstur að nefnd forspurðri 29. maí 2005 00:01
Ríkisstjórnin ákvað að auglýsa Búnaðarbankann til sölu um leið og Landsbankann að einkavæðingarnefnd forspurðri. Þetta segir í úttekt Fréttablaðsins á sölu ríkisins á bönkunum. Formaður Vinstri grænna krefst opinberar rannsóknar. Forsætisráðherra, utanríkisráðherra, fjármálaráðherra og bankamálaráðherra hafi breytt auglýsingu frá einkavæðingarnefnd um sölu Landsbankans og fyrst þá hafi nefndinni orðið ljóst að selja ætti báða bankana samtímis. Þetta hafi valdið vonbrigðum í Samson-hópnum, sem síðar eignaðist Landsbankann, sem gerði ráð fyrir að fá forskot á þá fjárfesta sem kaupa mundu Búnaðarbankann. Önnur sjónarmið en verðtilboð lágu lengi framan af til grundvallar vali á kaupendum bankanna því að á lokafundi fjárfesta með einkavæðingarnefnd hafði ekki enn verið fært í tal hvaða hugmyndir hóparnir gerðu sér um verð. Deilt var innan einkavæðingarnefndar um hvert vægi verðið ætti að hafa við lokaákvörðunina en Samson átti lægsta tilboðið í Landsbankann. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, vill ítarlega rannsókn á málinu og segir að um hrossakaup af verstu tegund hafi verið að ræða. Beitt hafi verið pólitísku handafli til að stýra bönkunum í hendur þóknanlegra aðila en ríkisstjórnin hafi lengi tileinkað sér slík vinnubrögð. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði aðspurð hvort hún vildi rannsókna að málið væri enn á borði fjárlaganefndar og að hún vildi bíða niðurstöðu hennar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Innlent „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Innlent Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Erlent Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Erlent Ísland rampar upp Úkraínu Innlent Drógu vélarvana togara í land Innlent Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Innlent Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Innlent Segir lítið til í orðum ráðherra Innlent Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Breytingar á framhaldsskólastigi: „Við erum að reyna átta okkur á þessu“ Rannsaka hvort maðurinn hafi haft samræði við ungan drenginn Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Lýsa yfir fullum stuðningi við stjórnendur Sólheima Vill að „guð“ taki á þeim sem vilja ekki fækka sveitarstjórnarmönnum Býður Sólveigu á fundinn og kannast ekkert við Virðingu Töldu ekki skilyrði fyrir varðhaldi yfir grunuðum barnaníðingi Kjarasamningur í höfn og atkvæðagreiðslu um verkfall aflýst Fara yfir gögnin en úttekt Viðskiptaráðs sé „skoðun hagsmunaaðila“ Sauð upp úr hjá förðunarmeistara og fegurðardrottningu Hvetja ráðherra til að mæta ekki á fund veitingamanna Bátar sviptir haffærisskírteini og Kourani sækir um náðun Lögreglan leitar manns Á annað hundrað báta óhaffærir vegna ófullnægjandi skoðunar Kourani sótti um náðun af heilbrigðisástæðum Efnisneysla á Íslandi dregst saman en nemur yfir sextán tonnum á mann Um tvö hundruð á ári á gjörgæslu vegna lífshættulegrar sýkingar „Það er erfitt að berjast fyrir eigin réttindum þegar maður er veikur“ Fór inn á heimili, klæddi sig úr fötunum og sofnaði í stól Sjá meira