Smáhundaæði leggst á Íslendinga 25. maí 2005 00:01
Þeir eru litlir og sætir og passa vel í handtösku. Nei, hér er ekki átt við nýjustu tegund gsm síma heldur smáhunda eða selskapshunda eins og þeir eru stundum kallaðir. Hunda eins og chihuahua, japanskan chin, cavalier og marga fleiri sem hafa átt vaxandi vinsældum að fagna undanfarin ár á Íslandi. "Fyrir fólk sem býr í borg er lítill hundur þægilegri en stór. Þú getur farið með hann allt með þér, hvort sem er í útilegu, í bæinn eða í heimsókn" segir Helga Þórðardóttir sem er yfir smáhundadeild Hundaræktarfélags Íslands. Hún telur að rekja megi ótrúlegar vinsældir smáhundakynsins til þess að fólki finnist mun auðveldara að halda lítinn hund. En auk þess hafi verið mikið af nýjum tegundum í boði og allt nýtt þyki spennandi. Ekki eru nema tólf ár síðan byrjað var að flytja inn smáhunda til landsins að einhverju marki. Þegar cavalierinn kom náði hann miklum vinsældum og er stór deild innan HRFÍ, segir Helga sem áætlar að um þrjú þúsund smáhundar séu á Íslandi í dag. Helga segir smáhunda ekki frábrugðna öðrum hundum í skapi. Þeir séu hvorki blíðari né grimmari en stærri hundar. Hins vegar finni hún fyrir mjög mismunandi viðhorfi fólks gagnvart stórum og smáum hundum. Fólk með litla hunda verði fyrir mun minna áreiti og viðhorfið yfirleitt jákvætt, enda þyki sniðugt og sætt að vera með hund í tösku. Hanna Björk Kristinsdóttir hjá HRFÍ, segir hundamenningu almennt vera að aukast í landinu. Þó hafi smáhundum fjölgað talvert á undanförnum árum. Algengt sé til dæmis að fólk sem áður hafi átt kött en vilji fá sér hund, fái sér frekar lítinn hund en stóran. Smáhundar geri ekki eins mikla kröfu til eigandans um hreyfingu og auðveldara að sleppa því að fara í lengri gönguferðir daglega. Verð á slíkum hundum er alfarið ákveðið af ræktendum sjálfum, segir Hanna. Algengt verð er þó frá um 120 til 180 þúsund krónur, þó Hanna hafi heyrt fleygt mun hærri upphæðum.
Innlent Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira