Héðinsfjarðargöng verði slegin af 7. maí 2005 00:01
Samgönguáætlun Gunnars I. Birgissonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, gerir ráð fyrir því að Héðinsfjarðargöng verði slegin af en göng gerð frá Fljótum yfir á Siglufjörð. Gunnari þykir súrt í brotið að meirihluti stjórnarliða í samgöngunefnd samþykki að einungis fimmtungur fjár til vegaframkvæmda á næstu árum renni til suðvesturhornsins. Meirihluti samgöngunefndar Alþingis samþykkti samgönguáætlun í gærkvöld. En þar með er ekki öll sagan sögð. Gunnar lagði fram sína eigin áætlun í morgun til að freista þess að leiðrétta hlut höfuðborgarsvæðisins. Hann hafði áður sagt að yrði samgönguáætlun samgönguráðherra samþykkt myndi hann leggja fram sína eigin áætlun. Gunnar segir sína áætlun gera ráð fyrir sátt í málinu; fjármunir verði færðir til höfuðborgarsvæðisins. Eins og áður segir vill hann slá af Héðinsfjarðargöng, gera göng frá Fljótum yfir á Siglufjörð, önnur undir Vaðlaheiði sem tengja eigi Eyjafjarðarsvæðið og Húsavíkursvæðið og ferðamannalínuna yfir í Þingeyjarsýslu og Mývatn. Helstu verkefnin á höfuðborgarsvæðinu séu svo Sundabraut, tvöföldun Vesturlandsvegar ásamt mislægum gatnamótum og tvöföldun Reykjanesbrautar í gegnum Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð. Gunnar segist ekki átta sig á því hvað valdi litlum vilja til framkvæmda á suðvesturhorninu. Hann telur að meiri sátt náist um samgöngumálin nái hans áætlun fram að ganga. Spurður hvort stuðningur sé við áætlunina meðal stjórnarliða segist hann ekki hafa gert könnun á því og það eigi því eftir að koma í ljós.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira