Óðinn fann bandarískt veðurdufl 7. maí 2005 00:01
Áhöfn varðskipsins Óðins fann á dögunum veðurdufl 99 sjómílur, eða 183 kílómetra, vestsuðvestur af Reykjanesi. Veðurduflið er í eigu bandarísku Hafrannsóknastofnunarinnar (NOAA). Duflinu var lagt út í júlí 2004 155 sjómílur (287 km) austur af Hvarfi á Grænlandi en þar er um eða yfir 3000 metra dýpi. Fyrstu sendingar frá duflinu bárust um Argos gervitungl 24. júlí. Legufæri duflsins slitnaði í óveðri 8. desember sl. og hefur það verið á reki allt þar til Óðinn fann það sl. sunnudag. Með duflinu fylgdu 1500 metrar af legufærum, restin hafði slitnað frá. Vegalengdin frá þeim stað er duflið slitnaði frá legufærum og að þeim stað er Óðinn tók það um borð er 419 sjómílur (775 km). Á svipuðum tíma og veðurduflið slitnaði frá legufærunum slitnuðu tvö önnur dufl bandarísku Hafrannsóknastofnunarinnar frá legufærum undan austurströnd Bandaríkjanna en skip bandarísku strandgæslunnar náðu þeim um borð áður en þau rak á land. Hvert dufl er metið á um 250.000 bandaríkjadali. Veðurduflin eru í raun fljótandi veðurstöðvar og mæla þau vindstefnu, vindhraða, loftþrýsting, lofthita, sjávarhita, hafstrauma og ölduhæð, að sögn Dagmars Sigurðardóttur, fjölmiðlafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Að sögn Halldórs Nellett, skipherra á varðskipinu Óðni, var duflið sem skipið fann fyrst og fremst sett út til að kanna hvernig slíkum duflum reiðir af í slæmu veðri. Staðurinn þar sem það var sett út er algjört veðravíti yfir vetrartímann að hans sögn. Þar getur verið mikil ísing og ölduhæð og jafnvel ísrek. Meðfylgjandi myndir tók Árni Ólason smyrjari á Óðni er verið var aðMYND/Árni ÓlasonMYND/Árni Ólason
Fréttir Innlent Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Fleiri fréttir Kópavogsbúar karpa um Reykjavíkur-Grýluna Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Sjá meira