Heldur áfram baráttunni 6. maí 2005 00:01
Meirihluti allsherjarnefndar afgreiddi í dag frumvarp um að kynferðisafbrot gegn börnum fyrntust ekki. Stjórnarmeirihlutinn samþykkti að afgreiða frumvarpið úr nefndinni með þeirri breytingu að kynferðisafbrot gegn börnum byrjuðu nú að fyrnast er þau ná átján ára aldri en áður var miðað við fjórtán ár. Umrædd tegund kynferðisbrota fyrnast á 5-15 árum. Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, vill að slík brot fyrnist ekki, enda hafi þau þá sérstöðu að koma oft og tíðum seint fram í dagsljósið Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, segir að frumvarpið gangi gegn meginreglu um fyrningar í hegningarlögum þar sem það geri engan greinarmun á alvarleika kynferðisbrota. Þá séu aðrar leiðir til að koma til móts við þá staðreynd að brotaþolar leiti sér seint aðstoðar. Þ.a.l. sé það óþarfi, að mati meirihlutans, að fella niður fyrningarfrestinn í öllum brotunum, þó því sé ekki hafnað alfarið að fara þá leið í alvarlegustu tilvikunum. „En við teljum rétt að þetta sé tekið til skoðunar á vettvangi ráðuneytisins og skoðað samhliða öðrum breytingum sem við teljum að þurfi að eiga sér stað á lögunum,“ segir Bjarni. Ágúst Ólafur segir að ekki sé nóg að gert. Hann segir það þó mikinn sigur að fá málið út úr nefndinni því það sé óalgengt um þingmannamál frá stjórnarandstöðu. Hann ætlar að halda áfram baráttunni því honum finnst ekki verið að veita börnum landsins nægilega réttarvernd með breytingartillögu meirihlutans.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira