Undirbýr leyfi til olíurannsókna 15. apríl 2005 00:01
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hefja undirbúning að því að veita olíufyrirtækjum leyfi til rannsókna og vinnslu á olíu á landgrunni Íslands. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra lagði fram greinargerð um málið á ríkisstjórnarfundi í dag og samþykkti ríkisstjórnin áætlun sem gerir ráð fyrir að nauðsynlegum undirbúningi til að bjóða fram leyfi verði lokið í ársbyrjun 2007. Samkvæmt því gætu boranir við Ísland í fyrsta lagi hafist árið 2009. Í greinargerð iðnaðarráðherra segir að ekki sé ljóst hvort olíuauðlindir sé að finna á Jan Mayen svæðinu, sem horft verði til fyrst í stað, en mælingar hafi gefið jákvæðar vísbendingar og erlend olíufyrirtæki sýni svæðinu vaxandi áhuga. Endanlegt svar fáist ekki nema með borunum sem séu mjög kostnaðarsamar og með ákvörðun ríkisstjórnarinnar sé verið að undirbúa næsta skref, það er að veita olíufyrirtækjum leyfi til borana. Móta þarf leyfisskilmála og gera ýmsar breytingar á lagaumhverfinu og huga sérstaklega að umhverfisvernd og mengunarvörnum í því sambandi. Í greinargerð iðnaðarráðherra er bent á að áhuginn hafi enn sem komið er verið mestur hjá minni olíuleitarfyrirtækjum sem tæpast hafi bolmagn til þess að standa sjálf fyrir borunum en fagmenn meti það svo að raunverulegur áhugi á borunum geti skapast hjá stórum alþjóðlegum fyrirtækjum innan fárra ára.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Innlent Þyrlan kölluð út á mesta forgangi Innlent Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Innlent Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Innlent Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Innlent Aðsetur ríkisstjórnarinnar logar eftir árásir næturinnar Erlent Vilja skylda samskiptaforrit til að skanna einkaskilaboð fólks Erlent Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Innlent Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Innlent Labubu bangsar ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla Innlent Fleiri fréttir Gleði og samvera í 60 plús leikfimi á Selfossi Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Syrgja fallið kornabarn og fyrsti þúsaldardýrlingurinn Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Kröftug mótmæli brjóti ekki gegn málfrelsi Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Þyrlan kölluð út á mesta forgangi Jákvæð gagnvart nýrri atvinnustefnu Frábær og vel heppnuð Ljósanótt Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Skoða að rifta fríverslunarsamningi við Ísrael Labubu bangsar ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla Fangageymslur fullar eftir erilsama nótt Aðgerðir vegna Gasa, málfrelsi á Íslandi og ný atvinnustefna Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Veltir fyrir sér hvort íslensk íþróttafélög verði af milljörðum Handtekinn undir áhrifum með tvö börn í bílnum Fjölmenn mótmæli og skortur á íslenskukunnáttu þrátt fyrir doktorsnám Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Gullkistan opnuð á Vestfjörðum Sóttu slasaðan ökumann við Surtshelli Gríðarlegur fjöldi á mótmælunum Þjóð gegn þjóðarmorði Tæpir sextíu þúsund fermetrar í eigu ríkisins standa tómir Kennir íslensku en fær ekki ríkisborgararétt að óbreyttu Tvöföldun erlendra fanga á fimm árum: „Þetta er auðvitað gríðarlega hátt hlutfall“ Nöfn myrtra barna verða lesin upp í sjö klukkustundir Eygir vonarneista í fyrsta sinn í marga mánuði Sjá meira