Meirihlutasamstarfið í hættu 5. apríl 2005 00:01
Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Vinstrihreyfingarinnar - græns Framboðs í sveitarstjórn Skagafjarðar er í hættu. Þar er komin upp pattstaða eftir að einn fulltrúi Sjálfstæðisflokksins hætti þátttöku í meirihlutasamstarfinu. Fréttastofan greindi frá því í gær að Bjarni Maronsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í sveitarstjórn, hafi hætt þátttöku í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Vinstri - grænna vegna trúnaðarbrests sem hann segir hafa komið upp á milli hans og Gísla Gunnarssonar, forseta sveitarstjórnar Skagafjarðar. Gísli vísaði Bjarna af fundi og kallaði til varamann þar sem hann taldi Bjarna vanhæfan við afgreiðslu máls innan sveitarstjórnarinnar. Bjarni fer nú með oddaatkvæði í sveitarstjórninni þar sem jafnmargir sveitarstjórnarmenn eru í meirihluta og minnihluta, fjórir í hvorri fylkingu, auk Bjarna. Ásdís Guðmundsdóttir, fulltrúi sjálfstæðismanna í sveitarstjórn Skagafjarðar, segist túlka það þannig að Bjarni sé að slíta meirihlutasamstarfinu og að næstu skref séu í höndum hans. Bjarni segir hins vegar að næstu skref séu í höndum Gísla Gunnarssonar, forseta sveitarstjórnar, en hann verður erlendis fram yfir helgi og því er ljóst að áfram ríki óvissa um meirihlutasamstarfið í sveitarstjórn Skagafjarðar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fleiri fréttir Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Sjá meira